Styrkir nauðstadda í Namibíu um hálfa milljón

Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri fjáröflunar- og …
Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri fjáröflunar- og kynningarmála hjá Rauða krossinum og Hjálmar Árnason, einn forsvarsmanna söfnunarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju hefur ákveðið að styrkja söfnun fyrir nauðstadda í Namibíu um hálfa milljón króna með framlagi úr líknarsjóði kirkjunnar.

„Við erum afskaplega þakklát líknarsjóði Hallgrímskirkju fyrir þennan rausnarlega stuðning. Það munar um minna í svona söfnun,“ segir Hjálmar Árnason, einn forsvarsmanna söfnunarinnar, í tilkynningu.

Fjórir fyrrverandi þingmenn, Hjálmar Árnason, Össur Skarphéðinsson, Ögmundur Jónasson og Unnur Brá Konráðsdóttir, hafa hrundið af stað söfnun fyrir nauðstadda í Namibíu, eins og komið hefur fram, og rennur allt söfnunarfé til Rauða krossins.

Þurrkar í sunnanverðri Afríku, sem rekja má til loftslagsbreytinga, ógna fæðuöryggi allt að 11 milljóna manna. Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) hafa sent frá sér neyðarbeiðni til alþjóðasamfélagsins auk landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans um að bregðast við og aðstoða við fjármögnun á mataraðstoð og landbúnaðaraðstoð á þeim svæðum sem hafa orðið hvað verst úti.

Rauðakrosshreyfingin undirbýr nú aðgerðir í Namibíu, Mósambík, Sambíu og fleiri löndum í sunnanverðri Afríku.

Í Namibíu er áætlað að tæplega 290.000 manns þurfi á mataraðstoð að halda. Í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi blésu þingmennirnir fyrrverandi til söfnunar meðal Íslendinga til að safna fé fyrir neyðaraðstoð í Namibíu.

Allt fé sem safnast verður nýtt til að efla landbúnað, auka aðgengi að vatni auk peninga- og matargjafa til þeirra sem verst hafa orðið úti í þurrkunum í Namibíu. Rauði krossinn einbeitir sér að um 15.000 manns sem mest þurfa á aðstoð að halda, segir í tilkynningunni.

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju úthlutaði 9,5 milljónum króna, úr líknarsjóðnum og messusamskotum, í styrki í desember. Stærstur hluti rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar og Kristniboðssambandsins.

Hægt er að leggja neyðarsöfnuninni lið með 900 krónum með því að senda SMS-ið NAMIBIA í númerið 1900. Eins er hægt að leggja inn á söfnunarreikning Rauða krossins nr. 0342-26-12, kt. 530269-2649, nota Kass eða Aur-númerið 123 570 4000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert