Útgjöld til heilbrigðismála 667 þúsund á mann

Heilbrigðisstarfsólk á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.
Heilbrigðisstarfsólk á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á næsta ári er gert ráð fyrir að útgjöld ríkisins til heilbrigðismála á mann verði að meðaltali um 667 þúsund krónur og að samtals nemi útgjöldin tæplega 245 milljörðum króna, að undanskilinni fjárfestingu.

Framlög til reksturs heilbrigðiskerfsins hafa aukist um rúmlega 28% að nafnvirði í tíð núverandi ríkisstjórnar, að því er segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Fram kemur að samkvæmt úttekt OECD á útgjöldum til heilbrigðismála vörðu Íslendingar 8,3% af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála árið 2018, en ríki innan OECD verja að meðaltali 8,8% af VLF til heilbrigðismála.

Tölur OECD taka jafnt til opinberrar og einkarekinnar þjónustu ásamt forvörnum en ná ekki yfir útgjöld til fjárfestinga, svo sem byggingar nýs Landspítala og uppbyggingar hjúkrunarheimila.

Aldurssamsetning þjóða er meðal þeirra þátta sem hafa mikil áhrif á útgjöld til heilbrigðismála. Heilbrigðisútgjöld eru að jafnaði lægri meðal yngri þjóða. Íslenska þjóðin er ung í alþjóðlegum samanburði og aldurssamsetning þjóðarinnar er einnig mjög hagfelld í samanburði við Norðurlöndin, að því er segir í tilkynningunni.

Svíþjóð og Finnland skera sig úr í þeim samanburði og eru mun eldri en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Ef gert er ráð fyrir óbreyttu heilbrigðiskerfi en aldurssamsetningu eins og annars staðar á Norðurlöndunum hækkar hlutfall heilbrigðisútgjalda af landsframleiðslu úr 8,3% í 9,7%. Þau væru þá vel ofan við meðaltal ríkja OECD og mun nær Norðurlöndunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert