Frosinni álft tókst að losa sig

Álftir fá sér vatnssopa.
Álftir fá sér vatnssopa. mbl.is/Kristinn Magnússon

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í hádeginu í útkall að tjörninni í Hafnarfirði við Lækjarskóla, annan daginn í röð, vegna álfta sem voru þar frosnar fastar.

Að sögn varðstjóra barst ábending um álftirnar og fóru slökkviliðsmenn á staðinn, enda hugsa þeir bæði um litla sem stóra í okkar samfélagi.

Þegar að var komið sást ein álft frosin við tjörnina en hún náði að rífa sig lausa sjálf áður en slökkviliðsmenn náðu að koma henni til aðstoðar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert