Umsjón með sjúkraflutningum verði á einni hendi

Meginniðurstaða starfshópsins er að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu …
Meginniðurstaða starfshópsins er að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu þurfi að vera á einni hendi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að gera tillögur að framtíðarskipulagi sjúkraflutninga á Íslandi í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Meginniðurstaða hópsins er sú að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu þurfi að vera á einni hendi.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.

Þá er lagt til að sett verði á fót miðstöð bráðaþjónustu og sjúkraflutninga (MBS) sem hafi víðtækt hlutverk með það að markmiði að samræma þjónustuna, veita faglegan stuðning, annast þjálfun og þróun fagstétta á þessu sviði og sinna gæðaeftirliti.

Starfshópinn skipaði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og var honum falið að gera tillögur sem snúa að mönnun, menntun, þjálfun og endurmenntun þeirra sem sinna sjúkraflutningum, fjalla um þjónustuviðmið, gæðamælikvarða og eftirlit með sjúkraflutningum sem og faglegum stuðningi með notkun fjarheilbrigðistækni.

Honum var einnig falið að endurskoða greiðslufyrirkomulag vegna sjúkraflutninga til samræmis við markmið þjónustunnar.

Frá skilafundi starfshóps um sjúkraflutninga.
Frá skilafundi starfshóps um sjúkraflutninga. Ljósmynd/Heilbrigðisráðuneytið

Hópurinn skilaði niðurstöðu sinni af sér í tveimur skýrslum

Niðurstöðunum skilaði hópurinn í tveimur skýrslum. Annars vegar er skýrsla sem dregur upp framtíðarsýn hópsins varðandi bráðaþjónustu og sjúkraflutninga með hliðsjón af markmiðum heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Hins vegar er skýrsla með ítarlegri umfjöllum um megintillögu hópsins varðandi MBS, þ.e. um skipulag miðstöðvarinnar, hlutverk og helstu verkefni. Þar fylgja jafnframt drög starfshópsins að þjónustuviðmiðum sem lagt er til að verði lögð til grundvallar að skipulagi bráðaþjónustu og sjúkraflutninga.

Viðmiðin taka til þátta eins og viðbragðstíma, þjálfunar mannskapar, tækjabúnaðar og lyfja, sérhæfðrar meðferðar og tíma þar til komið er á sérhæft sjúkrahús.

Öruggir sjúkraflutningar einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar

Heilbrigðisráðherra segir mikinn feng í tillögum starfshópsins og greinilegt sé að mikil vinna og faglegur metnaður liggi að baki.

„Það er líka mikið í húfi. Vel skipulagðir, skilvirkir og öruggir sjúkraflutningar eru einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar. Þeir eru jafnframt afgerandi þáttur í því að tryggja íbúum í dreifðum byggðum landsins sem greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustu og stuðla þannig að auknum jöfnuði óháð búsetu,“ er haft eftir Svandísi í tilkynningu.

Tillögur starfshópsins verða nú rýndar í heilbrigðisráðuneytinu og niðurstaðan kynnt fyrir ríkisstjórn til ákvörðunar um framhald málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert