Varar við íslenskum þaratöflum

Varan inniheldur of mikið af joði.
Varan inniheldur of mikið af joði. Ljósmynd/Mast

Matvælastofnun varar við neyslu á fæðubótarefninu Íslenskar þaratöflur frá Gula miðanum vegna þess að í ráðlögðum dagskammti (einni töflu) er of mikið magn af joði. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Samkvæmt upplýsingum á umbúðum vörunnar á hún að innihalda 220 μg af joði í ráðlögðum daglegum neysluskammti sem er ein tafla á dag. Töflurnar hafa verið efnamældar og kom í ljós að magn joðs er 800 μg í hverri töflu. Efri öryggismörk joðs samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) eru 600 μg á dag,“ kemur fram í tilkynningunni.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þá verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Fyrirtækið Heilsa hefur innkallað vöruna af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Innköllunin á við allar lotur og allar framleiðsludagsetningar:

  • Vöruheiti: Íslenskar þaratöflur 120 st. 
  • Vörumerki: Guli miðinn
  • Strikanr: 5690684000127
  • Framleiðslulota: Allar
  • Dagsetning: Allar
  • Framleiðandi: Heilsa ehf, Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Í apótekum og lyfjaverslunum: Apótekaranum, Apóteki Garðabæjar, Apóteki Hafnarfjarðar, Apóteki Mosfellsbæjar, Apóteki Vesturlands, Apótekinu, Austurbæjarapóteki, Árbæjarapóteki, Borgarapóteki, Garðsapóteki, Heilsuhúsinu, Lyfjaveri / Heilsuveri, Lyfju, Lyfjum og heilsu, Reykjanesapóteki, Reykjavíkurapóteki, Rimaapóteki, Siglufjarðarapóteki og Urðarapóteki.
  • Verslanir: Fjarðarkaup, Hagkaup, Hlíðarkaup, Iceland, Kaupfélag Skagfirðinga, Kjörbúðin, Krónan, Melabúðin, Nettó og Verslun Einars Ólafssonar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert