Þingheimur minntist Guðrúnar Ögmundsdóttur

Guðrúnar Ögmundsdóttur var minnst í upphafi fyrsta þingfundar ársins í …
Guðrúnar Ögmundsdóttur var minnst í upphafi fyrsta þingfundar ársins í dag. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis fór með minningarorð um Guðrúnu Ögmundsdóttur við upphaf fyrsta þingfundar nýs árs, síðdegis í dag. Sem kunnugt er andaðist Guðrún á gamlársdag, 69 ára að aldri.

Steingrímur fór nokkuð ítarlega yfir áratugalangan feril Guðrúnar í stjórnmálum og mannréttindamálum í minningarorðum sínum, en að þeim loknum bað hann þingheim um að rísa á fætur og minnast Guðrúnar.

Hispurslaus og hreinskiptin, vinamörg og vinsæl

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/​Hari

„Guðrún Ögmundsdóttir var glaðsinna og frjálsleg í fasi en jafnframt baráttukona með ríka réttlætiskennd sem stóð fast á sínu þegar á þurfti að halda. Hún var bæði hispurslaus og hreinskiptin og var vinamörg og vinsæl, jafnt meðal pólitískra samherja sem mótherja. Það var eins og birti yfir umhverfinu þegar djúp en eilítið hrjúf rödd Guðrúnar Ögmundsdóttur hljómaði, jafnvel þótt það væri aðeins gegnum útvarp, svo ekki sé talað um hvað gaman var að hitta hana í eigin persónu,“ sagði Steingrímur meðal annars í minningarorðum sínum fyrir hönd þingsins.

Minningarorðin má lesa í heild sinni á vef Alþingis

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert