Þrír af sexmenningunum sem Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gæsluvarðhald í gær hafa kært úrskurðinn til Landsréttar.
Þetta staðfestir Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einhverja daga tekur að fá niðurstöðu úr kærunni. Hann getur ekki gefið frekari upplýsingar um rannsókn málsins, sem er í fullum gangi.
Fimm voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 31. janúar og einn til 27. janúar. Það var gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, sem snýr m.a. að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.
Sexmenningarnir voru handteknir samhliða mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.