Eitrun af völdum Clostridium botulinum greinist á Íslandi

Algengustu orsakir bótulisma eru heimalöguð matvæli eins og kjöt, fiskur, …
Algengustu orsakir bótulisma eru heimalöguð matvæli eins og kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir, sem eru oftast niðursoðin, grafin, súrsuð eða gerjuð og gjarnan í lofttæmdum umbúðum. Því er mikilvægt að vanda vel til verka við slíka vinnslu, bæði í heimahúsum og í matvælafyrirtækjum. mbl.is/Hanna

Hinn 18. janúar var bótúlismi staðfestur hjá fullorðnum einstaklingi hér á landi. Fyrstu einkenni byrjuðu 12. janúar og var eitrunin staðfest tæpri viku síðar. Eitrunarinnar hefur ekki orðið vart hjá öðrum einstaklingum.

Uppruna eitrunarinnar er ákaft leitað í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, Matvælastofnun og sóttvarnalækni auk sýkla- og veirufræðideildar Landspítala og rannsóknarstofu Matís, að því er Matvælastofnun greinir frá í tilkynningu. 

Helsta einkenni hratt vaxandi lömun

„Bótúlismi er eitrun af völdum Clostridium botulinum, sem er grómyndandi loftfælin baktería. Bakterían getur myndað mjög öflugt eitur (botulinum toxin) og ef hún nær að vaxa í matvælum veldur hún alvarlegum veikindum með lömun sem leitt getur til dauða. Tími frá neyslu mengaðra matvæla til veikinda er stuttur; frá nokkrum klukkustundum til þriggja sólarhringa, og helsta einkenni er hratt vaxandi lömun. Í yfirstandandi rannsókn er ekkert sem bendir til að upprunann megi finna í matvælum sem eru í dreifingu.

Bótúlismi er mjög sjaldgæf eitrun sem hefur aðeins greinst hér á landi þrisvar; fyrst árið 1949 þegar fjórir menn veiktust eftir neyslu súrsaðs dilkakjöts, aftur 1981 þegar fjögurra manna fjölskylda veiktist og síðast árið 1983 þegar móðir og barn veiktust eftir að hafa borðað súrt slátur sem bakterían fannst í,“ segir MAST. 

Þá segir að algengustu orsakir bótúlisma séu heimalöguð matvæli eins og kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir, sem séu oftast niðursoðin, grafin, súrsuð eða gerjuð og gjarnan í lofttæmdum umbúðum. Því sé mikilvægt að vanda vel til verka við slíka vinnslu, bæði í heimahúsum og í matvælafyrirtækjum. 

Almennar ráðleggingar við meðhöndlun matvæla:

  • Forðist bólgnar/gallaðar niðursuðudósir/umbúðir
  • Skolið grænmeti og ávexti fyrir notkun
  • Haldið hráum og elduðum matvælum aðskildum
  • Hitið matvæli nægjanlega mikið og tryggið hraða kælingu ef þeirra er ekki neytt strax
  • Haldið kælivörum við 0-4°C
  • Fylgið leiðbeiningum og geymsluþolsmerkingum á matvælum
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert