„Geta ekki talist ásættanleg vinnubrögð“

Snarrótin gagnrýnir vinnubrögð lögreglu.
Snarrótin gagnrýnir vinnubrögð lögreglu. mbl.is/Eggert

Að kalla lögreglu eina á vettvang til að eiga við manneskju í geðrofsástandi geta ekki talist ásættanleg vinnubrögð, sér í lagi þegar manneskjan er ekkert að brjóta af sér og verkefnið snýst fyrst og fremst um að reyna að róa hana niður. Þekking heilbrigðisstarfsfólks á ástandi af þessu tagi er lykilþáttur í að tryggja öryggi allra á vettvangi og andleg veikindi ættu alltaf sem önnur veikindi að vera meðhöndluð sem heilbrigðismál.“ 

Þetta er á meðal þess sem segir í yfirlýsingu frá Snarróttinni — samtökum um skaðaminnkun og mannréttindi, vegna máls Heklu Lindar Jónsdóttur, ungrar konu sem lést eftir átök við lögreglu, en konan var í samkvæmi þar sem mikið var um eiturlyf og hún í miklu ójafnvægi. 

Lögregla skuli ekki send ein á vettvang

Þá segir í yfirlýsingunni: „Út frá málsgögnum, þar með talið framburði lögregluþjóna á vettvangi, er ljóst og óumdeilt að aðfarir lögreglu snerust meðal annars um að leggja Heklu Lind á magann og styðja hné á herðablaðasvæði hennar. Þvinguð lega á maga auk þrýstings á bak er þekktur áhættuþáttur þegar reynt er að taka niður og skorða æsta manneskju. Vitað er að slíkar aðferðir geta aukið líkur á dauðsfalli, þar sem þrengt er að öndun manneskjunnar. Allt of mörg dæmi eru um að það hafi gerst og dæmin finnast um allan heim. Þessar aðferðir eru hins vegar engan veginn nauðsynlegur liður í því að þvinga manneskju til að vera kyrra og tryggja öryggi á vettvangi. Það starfsfólk geðdeildar sem sinnir verkefnum sem geta krafist þess að beita skjólstæðinga deildanna líkamlegum þvingunum fær sérstaka þjálfun í að notast við aðferðir sem draga úr áhættu af þessu tagi – þær eru til og þekkingarleysi á þeim er ekki afsökun.

Snarrótin hvetur því Neyðarlínu til þess að endurskoða verkferla þannig að tryggt sé að lögregla sé ekki send ein á vettvang þegar vitað er að eiga þarf við manneskju í geðrofsástandi eða öðru ástandi þar sem augljóst er að þekking heilbrigðisstarfsfólks eykur líkur á því að hægt sé að eiga við aðstæður á vettvangi á farsælan hátt – eða er jafnvel bráðnauðsynleg til að tryggja öryggi fólks og ásættanlega niðurstöðu útkalls. Líta þarf á veikt fólk sem skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins fyrst en viðfangefni lögreglu síðast. Lögregla mæti heilbrigðisstarfsfólki til stuðnings en aldrei ein síns liðs. Jafnframt er lögreglan hvött til þess að endurskoða þá þjálfun sem lögregluþjónar fá í því að eiga við fólk í slíku ástandi. Ef nauðsynlegt er að kalla til lögreglu til að hafa afskipti af veiku fólki á annað borð er það því beinlínis lífsnauðsynlegt að lögregla hafi fengið viðeigandi þjálfun í að takast á við aðstæður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert