Formlegri leit að Rimu hætt

Björgunarsveitarmenn við leit að Rimu í lok desember.
Björgunarsveitarmenn við leit að Rimu í lok desember. Mbl.is/Jónas Erlendsson

Lögreglan á Suðurlandi hefur ákveðið að hætta formlegri leit að Rimu Grunskyté Feliksasdóttur sem leitað hefur verið að frá því 23. desember.

Ákvörðunin var tekin eftir fund með svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 16 sem var haldinn á Vík í gærkvöldi, að því er segir í tilkynningu.

Rima er talin hafa fallið í sjó af Dyrhólaey 20. desember og látist við það. Leit að henni hefur ekki borið árangur en henni hefur verið sinnt bæði formlega af stórum hópum björgunarsveitarmanna og einnig af minni hópum sem fylgst hafa með reki á fjörur á líklegum stöðum.  

Fyrir liggur að því óformlega eftirliti verður áfram sinnt eftir því sem aðstæður gefa tilefni til hverju sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert