Styrkir Afstöðu um 2 milljónir

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, og Ásmundur Einar Daðason, félags- …
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, veitti Afstöðu, félagi fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, tveggja milljóna króna styrk en félagið er 15 ára í dag.

Félagið Afstaða var stofnað af föngum á Litla-Hrauni 23. janúar 2005. Markmið félagsins er að vinna að tækifæri fyrir fanga til ábyrgðar, endurreisnar og að búa þeim skilyrði til farsællar endurkomu út í samfélag manna.

„Málefni fanga hafa verið mikið í umræðunni undanfarið. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skipaði í júní 2018 starfshóp um bættar félagslegar aðstæður einstaklinga sem lokið hafa afplánun refsingar í fangelsi og tók ráðherra formlega við skýrslu hópsins 12. desember sl.

Við gerð skýrslunnar var meðal annars horft til fyrirkomulags á Norðurlöndunum og á Englandi en að mati starfshópsins er ljóst að bataúrræði séu ekki tæk nema horft sé á heildrænan hátt á allt tímabilið, frá því að dómur er kveðinn upp þar til eftir afplánun. Megináhersla verði lögð á menntun, starfsendurhæfingu, sálfræðiþjónustu, félagsráðgjöf og, í þeim tilvikum sem það á við, fíkniráðgjöf. Í skýrslunni er einnig lagt til að boðið verði upp á fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu og ráðgjöf á meðan beðið er eftir betrunarvist. Þjónustan verði bæði fyrir fanga og fjölskyldur þeirra, auk þess sem fjölbreytt úrræði standi þeim til boða að vist lokinni.

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að í byrjun árs 2020 verði settur á fót stýrihópur undir formennsku félagsmálaráðuneytisins með breiða skírskotun sem falið verði að fylgja eftir tillögum skýrslunnar og mun Afstaða eiga fulltrúa í þeim stýrihópi,“ segir í fréttatilkynningu á vef ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert