„Lítur út eins og byrjun á langvarandi ferli“

Und­an­farna daga hef­ur landris og auk­in jarðskjálfta­virkni mælst á Reykja­nesskaga
Und­an­farna daga hef­ur landris og auk­in jarðskjálfta­virkni mælst á Reykja­nesskaga Kort/Veðurstofa Íslands

„Við erum að bregðast svona við af því þetta er svo nálægt byggð. Við teljum ekki líklegt að það sé neitt stórkostlegt að fara að gerast alveg strax,“ segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is vegna meintrar kvikusöfnunar undir fjallinu Þorbirni á Reykjanesi, sem stendur við Grindavík.

„Þetta lítur út eins og byrjunin á einhverju langvarandi ferli frekar en eitthvað yfirvofandi, en af því þetta er alveg við bæjardyrnar á Grindavík verða menn að bregðast svolítið hraustlega við.“

Kviku­söfn­un á sér nú mögulega stað und­ir fjall­inu Þor­birni sem …
Kviku­söfn­un á sér nú mögulega stað und­ir fjall­inu Þor­birni sem hér sést að baki byggðinni í Grinda­vík. mbl.is/Sigurður Bogi

Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna ástandsins, en um er að ræða hraðasta landris síðan mælingar hófust. Land hefur risið um 2 sentímetra frá 21. janúar og hafa skjálftar sömuleiðis verið tíðir á svæðinu.

Sólarhringsvakt Veðurstofunnar hefur aukið eftirlit með svæðinu, auk þess sem til stendur að gera þyngdarmælingu á svæðinu og setja upp fleiri mæla.

Þyngdarmæling getur leitt í ljós hvort um kvikusöfnun sé að ræða

„Við erum að skipuleggja þetta. Fyrstu aðgerðir verða væntanlega strax á morgun. Það eru þarna skjálftamælar sem eru ekki tengdir á netið, heldur eru rannsóknarmælar, og fyrsta verk okkar verður að koma þeim inn í kerfi Veðurstofunnar,“ segir Benedikt.

„Síðan er stefnan að þyngdarmæla. Það hefur verið þyngdarmælt þarna áður og það getur gefið mjög góðar upplýsingar um hvort kvika er að safnast þarna fyrir eða ekki. Stefnan er að gera það strax á þriðjudag. Svo er stefnan að bæta við landmælingatækjum, GPS-mælum, það verður gert á morgun eða hinn eða um leið og hægt er í vikunni.“

Íbúafundur verður haldinn í Grindavík klukkan 16 á morgun þar sem verður farið nán­ar yfir stöðu mála með full­trú­um al­manna­varna, viðbragðsaðila og vís­inda­manna.

Myndin sýnir jarðskorpuhreyfingar á Reykjanesskaga 18.-24. janúar mældar með InSAR …
Myndin sýnir jarðskorpuhreyfingar á Reykjanesskaga 18.-24. janúar mældar með InSAR bylgjuvíxlmælingum á myndum frá Sentinel-1 gervitunglinu (InSAR: interferometric analysis of synthetic aperture radar images). Miðja svæðisins þar sem breytingar greinast í myndinni er við fjallið Þorbjörn. Rauði liturinn táknar breytingar yfir 15 millimetra. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert