Verkfallsaðgerðir samþykktar með 95,5% atkvæða

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hér stödd á opnum fundi …
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hér stödd á opnum fundi Eflingar í Iðnó fyrir helgi. mbl.is/Eggert

Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda í atkvæðagreiðslu Eflingar um verkfallsaðgerðir gegn Reykjavíkurborg eða 95,5% hefur samþykkt verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslan stóð yfir í fimm daga og lauk á hádegi í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eflingu.

Þar segir að metþátttaka hafi verið í atkvæðagreiðslunni eða 59,2%, en alls voru 1.894 félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg á kjörskrá að þessu sinni. Af þeim greiddi 1.121 atkvæði.

Af greiddum atkvæðum samþykkti 1.071 eða 95,5% verkfallsboðun. Alls voru 34 á móti eða 3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða 1,4%.  Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fagnaði því að félagsmenn hefðu tekið undir tillögu samninganefndar um boðun verkfallsaðgerða.

„Ég hef fundið fyrir gríðarlegum baráttuvilja meðal starfsmanna í fjölmörgum heimsóknum mínum á vinnustaði borgarinnar síðan í haust. Fólk er orðið langþreytt á því að vinna fyrir sultarlaunum við vaxandi álag og erfiðar aðstæður. Metkosningaþátttaka, svo ekki sé talað um yfirgnæfandi vilja til aðgerða, sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri leið og höfum fjöldann á bak við okkur. Með þennan vind í seglunum eru okkur allir vegir færir í baráttunni við borgina,“ er haft eftir formanninum í fréttatilkynningu.

Með atkvæðagreiðslunni hafa félgsmenn Eflingar samþykkt verkfallsboðun gagnvart Reykjavíkurborg. Formleg verkfallsboðun verður afhent borgaryfirvöldum og ríkissáttasemjara fyrir hádegi á morgun, mánudaginn 27. janúar.

Skipulag verkfallsaðgerða verður með eftirfarandi hætti:

  • Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
  • Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Þriðjudagur 11. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.
  • Miðvikudagur 12. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Fimmtudagur 13. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.
  • Mánudagur 17. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert