Allt að 12 stiga frost

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er allt að 12 stiga frosti inn til landsins en kaldast verður í innsveitum norðanlands. Vetrarfærð er í öllum landshlutum og éljagangur eða snjókoma á Suður- og Suðvesturlandi.

„Á höfuðborgarsvæðinu hefur gengið á með éljum í nótt og éljagangurinn heldur áfram fram eftir morgni. Það má því búast við að morgunumferðin verði nokkuð hæg.
Um hádegi snýst í norðaustanátt, víða 3-8 m/s en 8-13 m/s með austurströndinni. Él á Austurlandi og síðar einnig norðanlands en styttir upp sunnan og vestan til á landinu. Víða frostlaust við sjávarsíðuna, einkum með suðurströndinni en frost 2 til 12 stig inn til landsins, kaldast í innsveitum norðanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Austlæg átt 5-10 m/s og él, en þurrt á Norðurlandi. Snýst í norðaustan 5-13 með morgninum með snjókomu eða éljum, fyrst austast, en styttir upp sunnan og vestan til.
Fremur hæg austlæg átt á morgun en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Skýjað um norðanvert landið og dálítil él, einkum við ströndina, en bjartviðri syðra. Frost 2 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands, en frostlaust við sjávarsíðuna.

Á miðvikudag:

Norðaustan 8-13 m/s norðvestan til, annars hægari norðlæg átt. Él um norðanvert landið, einkum við ströndina, en bjartviðri syðra. Frost víða 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

Á fimmtudag:
Norðaustan 8-13 á Vestfjörðum en hægari austlæg átt annars staðar. Stöku él, en þurrt og bjart vestanlands. Frost víða 3 til 8 stig.

Á föstudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s og dálítil él, en léttskýjað um sunnavert landið. Frost um land allt.

Á laugardag:
Hæg norðlæg átt, skýjað og lítils háttar él, en bjartviðri sunnan til á landinu. Kalt í veðri.

Á sunnudag:
Hæg austlæg átt, skýjað af háskýjum og þurrt, en dálítil snjókoma austast. Áfram kalt í veðri.

Á mánudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og stöku él norðanlands, annars þurrt. Frost um land allt.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert