Ökuskírteini í símann í vor

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Hari

Stafræn ökuskírteini líta dagsins ljós í vor þegar fólk getur kvatt bleika ökuskírteinið og haft upplýsingarnar í símanum. Dómsmálaráðherra segir að stafræn ökuskírteini verði til hagsbóta fyrir fólk enda síminn oftast með í för.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni.

Þar segir hún enn fremur að síðustu mánuði hafi verið unnið að útgáfu stafrænna ökuskírteini í samvinnu við ríkislögreglustjóra.

Mikil þróun hefur verið í notkun öruggari snjallsímaþjónustu sem gerir það kleift að gefa ökuskírteini út með öðrum hætti en á plasti,“ skrifar ráðherra og heldur áfram:

Nú er tæknileg útfærsla tilbúin og ekkert því til fyrirstöðu að hefja útgáfu á stafrænum ökuskírteinum fyrir snjallsíma, jafnt fyrir Android- og iOS-stýrikerfi. Notendur munu geta fengið stafrænu ökuskírteinin með því að sækja um þau á Íslandi með rafrænum skilríkjum.

Stefnt er að því að koma rafrænum ökuskírteinum í gagnið fyrir 1. júní á árinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert