Var með metamfetamín og kókaín á sér

Maðurinn var með tíu sölupakkningar af kókaíni og metamfetamíni á …
Maðurinn var með tíu sölupakkningar af kókaíni og metamfetamíni á sér. AFP

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna reyndist vera með metamfetamín og kókaín í tíu smelluláspokum. Einnig fundust fíkniefni á heimili mannsins þar sem húsleit var gerð að fenginni heimild. Þá voru nær sextíu þúsund krónur haldlagðar vegna gruns um að um væri að ræða ágóða af fíkniefnasölu. Maðurinn viðurkenndi eign sína á fíkniefnunum við skýrslutöku.

Þá fannst umtalsvert magn af kannabisefnum við húsleit, sem gerð var að fenginni heimild, í umdæminu. Húsráðandi framvísaði kannabisefni við komu lögreglumanna og við leit fundust einnig efni í íbúðinni og bílskúr í ýmsum ílátum. Einnig fannst vigt og mikið magn af smelluláspokum.

Húsráðandi játaði eign sína á efnunum en neitaði að hafa haft í hyggju að selja þau, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert