Bandaríski karlmaðurinn sem er grunaður um kynferðisbrot gegn drengjum í nokkrum löndum, meðal annars hér á landi, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. mars.
Maðurinn var fyrst handtekinn 31. janúar og úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Hann var færður fyrir dómara í gær og úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, samkvæmt upplýsingum frá Sveinbirni Halldórssyni, lögreglufulltrúa hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum.
Aðspurður segir hann rannsóknina ganga vel. „Þetta er algjört forgangsmál og fjöldi manns að vinna í þessu. En þetta er umfangsmikið og tekur tíma.“
Rannsóknin nær út fyrir landsteinana og er unnin í samvinnu við nokkur erlend lögregluyfirvöld og Europol.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er grunaður um að tæla drengi á samfélagsmiðlum. Sveinbjörn segir ekki tímabært að segja til um yfir hversu langt tímabil brot hans ná hér á landi eða hversu margir drengir eru þolendur í málinu. „Þeir eru nokkrir en ég get ekki sagt neina tölu.“