Eiginkona mannsins ekki smituð af kórónuveiru

Frá blaðamannafundinum í dag.
Frá blaðamannafundinum í dag. mbl.is/Arnþór Birkisson

Eiginkona mannsins sem greindist með kórónuveiru í dag er ekki sýkt af veirunni. Sýni var tekið úr henni en það reyndist neikvætt. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra greinir frá þessu á Facebook.

Fjölskylda mannsins er í sóttkví vegna veirunnar sem og vinnustaður mannsins. Hann er á fimmtugsaldri og er ekki bráðveikur.

Fjölskyldan var á skíðum á Norður-Ítalíu dagana 15.-22. febrúar, þó ekki í einu þeirra fjögurra héraða þar í landi sem skilgreind hafa verið sem smithættusvæði.

Maðurinn veiktist eftir að hann kom til landsins og smit hans var staðfest á veirudeild Landspítala laust eftir kl. 13 í dag.

Alma D. Möller landlæknir sagði á blaðamannafundi í dag að fjölskylda mannsins hefði tekið fréttunum um veikindi hans með miklu æðruleysi.

Maðurinn er sá fyrsti sem greinst hefur með kórónuveiruna hérlendis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert