Viðurkennt sem fyrsta barnvæna sveitarfélagið

Frá vinstri: Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Ásmundur Einar …
Frá vinstri: Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, verkefnastýra barnvæns sveitarfélags hjá Akureyrarbæ, Hildur Lilja Jónsdóttir, Ari Orrason, Rakel Alda Steinsdóttir og Embla Kristín Blöndal Jóhannsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs Akureyrarbæjar, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Akureyrarbær varð í dag fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að hljóta viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, afhentu Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri, viðurkenninguna við hátíðlega athöfn á Akureyri.

Í viðurkenningunni felast þakkir til sveitarfélagsins fyrir að hafa unnið markvisst að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu og starfsemi bæjarins, með hagsmuni allra barna og ungmenna sveitarfélagsins að leiðarljósi, að því er segir í tilkynningu.

Akureyrarbær er nú kominn í hóp valinna sveitarfélaga um allan heim, sem leggja Barnasáttmálann til grundvallar öllu sínu starfi. Viðurkenninguna hlýtur sveitarfélagið til þriggja ára og á það kost á að endurnýja hana að þeim tíma liðnum.

„Með þátttöku í verkefninu hefur Akureyrarbær rutt brautina fyrir önnur sveitarfélög á Íslandi og tekið markvissan þátt í þróun verkefnisins á Íslandi frá árinu 2016. Mikill áhugi er meðal sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu, en samtals hefja níu þeirra þátttöku á þessu ári og tólf á því næsta,“ segir í tilkynningunni.

„Gefur okkur aukinn kraft“

„Akureyrarbær hefur einsett sér að vera í fararbroddi þegar kemur að réttindum og lífsgæðum barna og þess vegna erum við afar stolt af þessari viðurkenningu. Mig langar á þessum tímamótum að þakka okkar frábæra starfsfólki sem hefur unnið að verkefninu af miklum krafti á öllum stigum sveitarfélagsins og ungmennum sem hafa tekið þátt í vinnunni með okkur. Viðurkenningin gefur okkur aukinn kraft til að halda áfram og gera enn betur í því að búa börnum og ungmennum gott samfélag þar sem réttindi þeirra og rödd er virt. Þessu verkefni lýkur aldrei þótt fyrsti áfangi sé í höfn,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, í tilkynningunni.

Hefur fylgst vel með innleiðingunni 

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, bætir við: „Frá því ég tók við embætti félags- og barnamálaráðherra hef ég heimsótt Akureyri reglulega til að fylgjast með innleiðingu þessa mikilvæga verkefnis. Akureyrarbær og ungmennaráð Akureyrar hafa sýnt það og sannað að markviss þátttaka barna og ungmenna býr til betri samfélög fyrir alla. Með því að vera fyrsta sveitarfélagið til að innleiða Barnasáttmálann hafa þau rutt brautina fyrir réttindi barna hér á landi. Það er því einstaklega gleðilegt að tilkynna við þetta tilefni að á næstu dögum mun stefna um Barnvænt Ísland, markvissa innleiðingu Barnasáttmálans, verða aðgengileg í samráðsgátt stjórnvalda. Við vonum að sem flestir kynni sér stefnuna og aðstoði okkur við að útfæra hana og gera Ísland að besta stað í heimi fyrir börn.“

Stolt af Akureyringum

„Við hjá UNICEF á Íslandi erum ákaflega stolt af Akureyringum og þeim áfanga sem við fögnum hér í dag. Verkefnið Barnvæn sveitarfélög og innleiðing Barnasáttmálans hófst hér fyrir fjórum árum og það hefur verið einstakt að vinna að þróun verkefnisins með starfsfólki Akureyrarbæjar. Fyrir hönd UNICEF á Íslandi langar mig að óska Akureyrarbæ, starfsfólki og ungmennaráði bæjarins og auðvitað öllum börnum á Akureyri innilega til hamingju,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert