Beint flug með afurðir til Kína

Eldislax er meðal afurða í beina fluginu frá Íslandi til …
Eldislax er meðal afurða í beina fluginu frá Íslandi til Kína. mbl.is/Helgi Bjarnason

Db Schenker er að hefja beint flug með lax og aðrar sjávarafurðir frá Íslandi til Kína. Fyrsta ferðin verður farin á morgun, föstudag, með 25 tonn af laxi og hvítfiski, og er uppselt í hana, báðar leiðir.

Notaðar eru þrjár farþegaþotur Icelandair sem annars stæðu ónotaðar á Keflavíkurflugvelli en vélarnar hefur flutningsmiðlunin haft á leigu frá því í apríl.

Flutningur á ferskum afurðum er hagkvæmari með þessum hætti en flugi í gegnum Evrópu en mikilvægara er þó fyrir eldisfyrirtækin og viðskiptavini þeirra að afurðirnar komast á skemmri tíma til viðskiptavina.

Ísland er með fríverslunarsamning við Kína og er eina landið í Evrópu sem getur selt lax, regnbogasilung og bleikju inn á þennan stóra og vaxandi markað án þess að tollar séu lagðir á verðið, að því er fram kemur í umfjöllun um þessa flutninga í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert