Óvænt aukning í júní

Umferðin í júní á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,2 prósent sem …
Umferðin í júní á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,2 prósent sem kom á óvart en þetta er fyrsti mánuður þessa árs þar sem umferðin í mánuðinum er meiri en umferðin í sama mánuði ári fyrr. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umferðin í júní á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,2 prósent sem kom á óvart en þetta er fyrsti mánuður þessa árs þar sem umferðin í mánuðinum er meiri en umferðin í sama mánuði ári fyrr.

Athygli vekur að það er aukin umferð á mánudögum sem stendur undir allri aukningunni. Skýringar á aukinni umferð á mánudögum eru ekki augljósar, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. 

Þá segir, að nokkuð óvænt hafi umferðin í nýliðnum júní reynst vera 1,2% meiri en í sama mánuði á síðasta ári, mest jókst umferðin í mælisniði á Reykjanesbraut eða um 3,2% en 1,6% samdráttur mældist í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi. Aðeins í júní 2018 hefur mælst meiri umferð um lykilmælisniðin þrjú.

Svo virðist sem umferð á mánudögum, í nýliðnum mánuði hafi tekið stórt stökk upp á við því hún mældist tæpum 12% meiri en á mánudögum í sama mánuði fyrir ári síðan. Mánudagar er jafnframt eini vikudagur mánaðarins sem sýnir aukningu á milli ára í júní þ.a.l. ber hann uppi umrædda aukningu.  Athygli vekur að aukningin á mánudögum er lang mest í öllum sniðum, segir á vef Vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert