Með mannúð og virðingu að leiðarljósi

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er dómsmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjögur stéttarfélög innan BHM hvetja stjórnvöld til þess að koma málefnum fólks í fíknivanda í nauðsynlegan farveg með mannúð og virðingu að leiðarljósi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagsráðgjafafélagi Íslands, Iðjuþjálfafélaginu, Sálfræðingafélaginu og Þroskaþjálfafélaginu vegna frumvarps til breytinga á lögum vegna fólks í fíknivanda.

„Í kjölfar þess að frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974 (varsla) var fellt á Alþingi hefur umræða um stöðu fólks sem notar fíkniefni og þurfa fyrst og fremst heilbrigðisþjónustu verið áberandi. Við undirrituð hörmum þá óvissu sem þessi viðkvæmi hópur fólks býr við á degi hverjum þar sem varsla neysluskammta er bönnuð samkvæmt lögum. 

Gagnreynd þekking í nútímasamfélagi gefur ótvírætt til kynna að refsistefna skilar engu en viðheldur jaðarsetningu og kostar mannslíf. Það ætti því að vera forgangsmál að mæta heilsufars- og félagslegum vanda með aðstoð í fyrirrúmi. Það er mikilvægt að tekið verði á fíkniefnaneyslu sem heilbrigðisvanda með áherslu á fræðslu, endurhæfingu og stuðning í stað úrræða í dómskerfinu. Það er ljóst að kostnaðurinn fyrir samfélagið við að beita refsingum er umtalsverður og hefur víðtæk og slæm samfélagsleg áhrif.

Greiður aðgangur að skaðaminnkandi velferðarþjónustu bætir á hinn bóginn lífsaðstæður fólks í fíknivanda auk þess að minnka líkur á þeim smitsjúkdómum sem fylgja honum. Þekkt er að ríkjandi fordómar og glæpavæðing hindrar fólk í að leita sér aðstoðar hjá lögreglu, félagsþjónustu og í heilbrigðiskerfinu.

Við viljum hvetja stjórnvöld eindregið til að koma málefnum þessa viðkvæma hóps í nauðsynlegan farveg með mannúð og virðingu að leiðarljósi líkt og önnur Evrópulönd hafa gert með góðum árangri. Slíkt er siðferðislega rétt og öllum í samfélaginu til hagsbóta,“ segir í yfirlýsingu frá félögunum fjórum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert