Sæmilega hófleg rigning með köflum

Áfram rignir nokkuð hressilega um austanvert landið fram undir hádegi, …
Áfram rignir nokkuð hressilega um austanvert landið fram undir hádegi, en annars má búast við sæmilega hóflegri rigningu með köflum í flestum landshlutum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veðrið sem varað var við í nótt fer að ganga niður með morgninum, en vindur blæs nokkuð hraustlega úr austri í fyrstu, einkum suðaustanlands, en snýst smám saman í heldur hægari suðlægar áttir.

Áfram rignir nokkuð hressilega um austanvert landið fram undir hádegi, en annars má búast við sæmilega hóflegri rigningu með köflum í flestum landshlutum í dag, síst þó um landið norðaustanvert, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Síðdegis hlýnar norðan heiða þar sem búist er við að hiti nái um 16 stigum. Sunnanlands verður áfram heldur svalt.

Næstu daga er útlit fyrir bitlausar suðlægar áttir og vætu hér og þar, en þurrt og bjart með köflum á Norðausturlandi og nokkuð hlýtt í veðri þar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s, hvassast suðvestan til. Dálítil væta með köflum og hiti 8 til 12 stig, en þurrt að mestu og bjart norðaustanlands með hita á bilinu 12 til 17 stig.

Á föstudag:
Fremur hæg breytileg átt. Dálítil væta vestan til, annars skýjað að mestu, en þurrt. Hiti víða 8 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á laugardag:
Vestlæg átt, 3-10. Allvíða skúrir, einkum síðdegis, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðlægar áttir með rigningu sunnan og vestan til, annars þurrt og bjart með köflum. Hlýnandi veður norðan heiða, en heldur svalt syðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert