Ný sjónarhorn í Stuðlagili

Það er ekki að ósekju að Stuðlagil er orðið að einum vinsælasta áfangastaði ferðamanna sem eiga leið um Austurland. Blágrænt vatnið í Jöklu og 30 metra hátt stuðlabergið gera staðinn algerlega einstakan en ekki síður að stutt er síðan yfirborð vatnsins lækkaði um 7-8 metra vegna gerðar Kárahnjúkastíflu. 

Líkt og að því er virðist allir aðrir Íslendingar hef ég nýtt sumarið í að skoða landið og óhætt er að segja að heimsóknin í Stuðlagil hafi verið einn af hápunktum ferðarinnar. Í myndskeiðinu má sjá afrakstur heimsóknarinnar en á svæðinu standa nú yfir framkvæmdir sem munu bæta aðgengi og þá verður einnig sett upp salernisaðstaða. Daglega leggja um 500 manns leið sína að gilinu og skyldi engan undra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert