Brýnt að fólk fari í sóttkví sem eigi að vera í sóttkví

Lögreglustjóri telur brýnt að fylgt sé því verklagi að einstaklingur …
Lögreglustjóri telur brýnt að fylgt sé því verklagi að einstaklingur fari í sóttkví eftir að rakningateymi almannavarna hefur sett sig í samband við viðkomandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglustjórinn á Vesturlandi hvetur almenning til að huga að persónulegum smitvörnum nú þegar smitum vegna Covid-19 hefur fjölgað á ný.

„Vonandi tekst okkur að hefta útbreiðslu frekari smita með rakningu, raðgreiningu, einangrun og sóttkví. Virða þarf 1 metra nándarregluna. Mælt er með að nota andlitsgrímur þegar ekki er hægt að virða nándarreglu og þar sem loftgæði eru ekki góð. Starfsfólk og nemar í framhaldsskólum og háskólum nota andlitsgrímur í dag. Mælt er með því að vinnustaðir bjóði upp á fjarvinnu þar sem starfsemi fyrirtækja fer úr skorðum ef ekki er gætt að smitvörnum og margir þurfa að fara í sóttkví,“ segir í tilkynningu á Facebook. 

Þá telur lögreglan rétt að árétta að skimanir séu fyrst og fremst ætlaðar fyrir einstaklinga sem hafi verið útsettir fyrir smitum. Heilsugæsla í nærumhverfi sinni einstaklingum með sjúkdómseinkenni.

Lögreglustjóri telur brýnt að fylgt sé því verklagi að einstaklingur fari í sóttkví eftir að rakningateymi almannavarna hefur sett sig í samband við viðkomandi. Þeim skilaboðum hefur umdæmislæknir sóttvarna hér á Vesturlandi komið á framfæri við sóttvarnalækni,“ segir ennfremur.

Þá bindur aðgerðastjórn á Vesturlandi vonir við að ekki þurfi að senda einstaklinga sem útsettir eru fyrir smiti um langan veg til sýnatöku eins og raunin varð með sýnatöku vegna tilviks tengt íþróttamiðstöð á Akranesi.

„Þurfum að vera á varðbergi og huga að persónulegum smitvörnum þar sem fjarlægðarregla og handþvottur skipta miklu máli. Þá er alltaf gott að kynna sér málin á covid.is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert