Brotist inn í vörugám

 Tilkynnt var til lögreglu um innbrot í vörugám verkfæraverslunar í Austurbænum (hverfi 108) í nótt. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hverju var stolið. 

Á fjórða tímanum í nótt var bifreið stöðvuð í Austurbænum (hverfi 103) og er ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Bifreiðin reyndist vera ótryggð og skráningarnúmer því klippt af. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert