Viðbúnaður vegna vélarvana skips

TF-Eir var send á vettvang í nótt.
TF-Eir var send á vettvang í nótt. Ljósmynd Landhelgisgæslan

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á ellefta tímanum í gærkvöld vegna 160 tonna fiskiskips sem varð vélarvana suðaustur af Berufirði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá áhöfn fiskiskipsins sem var statt um 3 mílur frá landi. Þrír voru um borð. Áhöfnin var viðbúin því að þurfa að kasta út akkeri þar sem álandsvindur var á svæðinu en ekki reyndist þörf á því. 

Áhöfnin á TF-EIR var stödd á Reykjavíkurflugvelli þegar útkallið barst og gat brugðist hratt við. Að auki var björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Hornafirði kallað út auk báts Fiskeldis Austfjarða sem meðal annars var mannaður björgunarsveitarmönnum frá Djúpavogi. TF-EIR tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 22:50 og skömmu síðar tókst áhöfn fiskiskipsins að koma vél þess í gang og sigldi austur fyrir Papey á ákjósanlegri stað ef skipið yrði aftur vélarvana.

Þyrlan hélt ferð sinni áfram til öryggis en björgunarskipið frá Hornafirði var afturkallað. Laust fyrir miðnætti var bátur Fiskeldis Austfjarða kominn að fiskiskipinu úti fyrir mynni Berufjarðar og héldu þau í samfloti áleiðis inn á Djúpavog. Þegar aðstæður voru orðnar öruggar var þyrla Landhelgisgæslunnar afturkölluð en þá var TF-EIR stödd við Ingólfshöfða. Fiskiskipið og bátur Fiskeldis Austfjarða voru komin á Djúpavog um hálfeitt í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert