Steingrímur J. Sigfússon hættir í pólitík

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hyggst ekki gefa kost á sér til að leiða framboð VG í alþingiskosningunum á næsta ári. Þetta kom fram í máli Steingríms á fundi kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis nú rétt í þessu.

Steingrímur er fyrrverandi fjármálaráðherra og var lengst af formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.

„Steingrímur sagðist hætta sáttur og mjög stoltur af árangri hreyfingarinnar. Þá kvaðst hann vera bjartsýnn á framtíð VG í landsmálunum, hún hefði verið til góðs fyrir samfélagið og þannig yrði það áfram,“ segir í tilkynningu frá VG.

Steingrímur er afar reynslumikill.
Steingrímur er afar reynslumikill. mbl.is/Ómar Óskarsson


„Katrín Jakobsdóttir, formaður VG sagðist aldrei hafa haft eins mikla löngun til að vera á staðfundi en ekki fjarfundi, til að geta staðið upp og klappað fyrir Steingrími. Þegar hún þakkaði honum fyrir samstarfið og þau fjölmörgu störf sem hann hefur gegnt í stjórnmálunum.“

Hefur lengstu reynsluna

Steingrímur er fæddur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. ágúst 1955. Hann hefur setið á Alþingi fyrir Norðurlandskjördæmi eystra og síðan Norðausturkjördæmi frá því 1983 og er með lengsta þingreynslu allra núverandi þingmanna.

Steingrímur var lengst af formaður Vinstri grænna.
Steingrímur var lengst af formaður Vinstri grænna. mbl.is

„Hann hefur leitt framboðslista í síðustu 11 alþingiskosningum og verið í framboði í öllum kosningum síðan 1978. Hann sat fyrst á þingi fyrir Alþýðubandalagið, var formaður þingflokks Alþýðubandalagsins um tíma. Vatnaskil urðu 1999 þegar Steingrímur stofnaði Vinstri Græn ásamt fleiri félögum,“ segir í tilkynningu.

„ Steingrímur hefur á sínum langa þingferli verið landbúnaðar- og samgönguráðherra, fjármála, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, efnahags og viðskiptaráðherra og atvinnuvega og nýsköpunarráðherra. Þá hefur Steingrímur verið leiðandi í norrænu samstarfi bæði í Norðurlandaráði og Vestnorræna ráðinu. Hann hefur verið forseti Alþingis, fyrst í stuttan tíma 2016 og fram í janúar 2017 og síðan aftur frá því eftir kosningar 2017 og er enn.  Lesa má um feril Steingríms J. Sigfússonar í bókinni Saga VG sem kom út á 20 ára afmæli hreyfingarinnar og í bókum sem hann hefur sjálfur skrifað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert