Ljós Óslóartrésins tendruð

Búið er að tendra ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli í …
Búið er að tendra ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli í Reykjavík. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Ljósin á Óslóartrénu voru tendruð á Austurvelli í kvöld. Ólíkt síðustu árum voru ekki nokkur hundruð manns viðstaddir vegna samkomutakmarkana. 

Hákon Örn Steen Bjarnason tendraði ljósin á trénu ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. 

Tréð er töluvert meira skreytt heldur en síðustu ár en fjórum sinnum fleiri perur eru á því auk 50 borða og óróa með Bjúgnakræki sem seldur er til styrktar Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. 

Ljósin voru tendruð í beinni útsendingu í kvöldfréttum Rúv.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert