Byggja 60 rýma hjúkrunarheimili á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 á Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna. Kostnaðurinn skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Akureyrarbær greiðir 15%. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2023. Þar með verða hjúkrunarrými á Akureyri rúmlega 230 en þau eru núna um 170.

Skortur á rýmum og frekari þörf fyrirsjáanleg

Samkvæmt mati heilbrigðisráðuneytisins er skortur á hjúkrunarrýmum á Akureyri og fyrirsjáanlegt að þörf fyrir fleiri rými aukist hratt á næstu árum.

„Það er afskaplega gleðilegt að samstarf ráðuneytisins og Akureyrarbæjar um þetta mikilvæga verkefni liggi nú fyrir skjalfest með samningi. Það er fátt ánægjulegra en að sjá stór skref stigin í átt að aukinni og bættri þjónustu við aldraða. Akureyrarbær hefur sinnt þeim málum afar vel, bæði við aldraða heima og á hjúkrunarheimilum og ég veit að svo mun verða áfram,“ er haft eftir Svandísi í tilkynningu. 

Ráðist verður í framkvæmdina á grundvelli alútboðs þar sem reynslan sýnir að sú leið getur stytt framkvæmdatíma og leitt til meiri hagkvæmni, eða allt að 10% lægri stofnkostnað en ef farin væri hefðbundin leið opinberra framkvæmda, samkvæmt fréttatilkynningunni. 

Alútboð felur í sér að þeir sem vilja vinna verkið bjóða í skilgreinda heildarupphæð þar sem jafnframt liggur fyrir ýtarleg þarfalýsing sem þarf að uppfylla. Teymi bjóðenda sem skipuð eru hönnuðum og verktökum og valin á grundvelli forvals, leggja síðan fram tillögur sem metnar eru innbyrðis út frá gæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert