Ófært í flestum landshlutum

Slæm færð er víða um land en þessi mynd var …
Slæm færð er víða um land en þessi mynd var tekin á Akureyri í morgun. mbl.is/Þorgeir

Vetrarfærð er á landinu og slæmt ferðaveður víða. Margir vegir eru ýmist lokaðir eða ófærir á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Hálka eða hálkublettir nokkuð víða á Suðvesturlandi. Hálkublettir og hvassviðri er á Hellisheiði.

Hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur á vegum á Vesturlandi, skafrenningur og víða mjög hvasst. Lokað er á Holtavörðuheiði og ófært á Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Þungfært er í Álftafirði. Búið er að opna veginn um Fróðárheiði en þar er nú snjóþekja á vegi. Ófært er um Bröttubrekku og beðið er með mokstur fram eftir morgni. Hjáleið er um Heydal. (55). Beðið verður með mokstur á Holtavörðuheiði fram eftir morgni vegna óveðurs.

Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka eða snjóþekja á vegum, éljagangur og skafrenningur. Ófært er á Klettshálsi, Dynjandisheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og norður í Árneshrepp og þungfært er í Steingrímsfirði. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð

Margir vegir eru lokaðir eða ófærir á Norðurlandi og hríðarveður víða á svæðinu. Hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð á vegum. Vegurinn um Vatnsskarð er ófær vegna óveðurs og beðið er með mokstur fram eftir morgni. Það sama á við um Þverárfjall. Vegurinn um Almenninga er ófær vegna veðurs en þar er einnig í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu. Öxnadalsheiði er lokuð vegna óveðurs og beðið er með mokstur fram eftir morgni. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla er lokaður vegna snjóflóðahættu og Víkurskarð er lokað vegna óveðurs.

Á Norðausturlandi er vetrarfærð á vegum, hvasst, éljagangur og skafrenningur. Ófært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Hófaskarði.

Á Austurlandi er lokað á Fjarðarheiði en ófært yfir Fagradal. Hálka eða snjóþekja er á vegum, snjókoma er á Út-Héraði og víða allhvasst. Öxi er lokuð og Breiðdalsheiði ófær.

Það er greiðfært frá Höfn að Öræfasveit en þar fyrir vestan eru hálkublettir en víða er allhvasst. Hálka eða hálkublettir víða á útvegum á Suðurlandi og á Hringvegi austan Hvolsvallar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert