Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknar hefur ásamt öðrum lagt fram tillögu til þingsályktunar um flutning höfuðstöðva Rarik ohf. á landsbyggina.
Meðflutningsmenn á tillögunni eru Silja Dögg Gunnarsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir. Allar eru þær þingmenn Framsóknar.
Tillagan felur í sér að Alþingi álykti um að „stefna skuli að flutningi höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og að kannað verði á grundvelli hagsmuna félagsins hvar væri hentugast að byggja upp höfuðstöðvarnar og efla starfsstöðvar Rariks um landið“.
Í greinargerð kemur fram að um 90% af dreifikerfi raforku í landinu eru í umsjón Rarik, m.a. í flestum sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins, Reykjaness og Vestfjarða.
Einnig að starfsmenn Rarik séu um 200 þar af 60 á höfuðborgarsvæðinu þar sem höfuðstövar félagsins eru. Það sama gildir um flestar opinberar stofnanir.
„Þetta leiðir til þess að yfirgnæfandi fjöldi opinberra starfa stendur einungis einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu eða í nærliggjandi byggðum til boða, eðli málsins samkvæmt,“ segir í greinargerðinni.
Talin eru til nokkur bæjarfélög þar sem finna mætti bækistöðvar Rarik ohf. Selfoss, Höfn í Hornafirði, Seyðisfjörður, Sauðárkrókur, Siglufjörður og Ólafsvík eru tekin sem dæmi.
„Meginstarfsemi Rariks ohf. fer fram á landsbyggðinni auk þess sem allar virkjanir félagsins eru þar. Þó eru höfuðstöðvar félagsins í Reykjavík. Núverandi staðsetning höfuðstöðvanna er ekki talin endurspegla starfsemina jafnvel og hægt væri.“