Björguðu farþegunum úr bílflakinu

Al­var­legt bíl­slys varð á Djúp­vegi í Skötuf­irði um tíu­leytið í …
Al­var­legt bíl­slys varð á Djúp­vegi í Skötuf­irði um tíu­leytið í morg­un. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Vegfarendur sem komu á vettvang umferðarslyss á Djúpvegi í Skötufirði unnu þrekvirki að sögn lögreglu. Vegfarendunum tókst að koma barni og konu sem voru um borð í bifreið sem farið hafði í sjóinn úr bifreiðinni og hófu endurlífgun. 

Klukkan 10:16 í morgun barst tilkynning til Neyðarlínunnar um slysið, en tilkynningin barst frá tveimur vegfarendum sem áttu þar leið hjá. Tilkynningin hljóðaði þannig að bifreið hefði lent út af veginum og hafnað í sjónum og að þrjár manneskjur væru um borð.

Vegfarendarnir tveir, sem komu fyrstir á vettvang, hófu þegar að gera ráðstafanir til að koma fólkinu til bjargar. Þeim bættist liðsauki þegar tveir aðrir vegfarendur komu að. Þessum aðilum tókst að koma tveimur farþegum úr bifreiðinni, konu og ungu barni, og upp á land. Hófu þessir fjórmenningar endurlífgun. Þriðji aðilinn var fastur uppi á þaki bílflaksins, að því er segir í færslu lögreglunnar á Vestfjörðum. 

Viðbragðsaðilar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðir út og aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum virkjuð auk samhæfingarmiðstöðvar almannavarna í Reykjavík.

Niðurstaða úr seinni sýnatöku á morgun 

Klukkustund eftir að tilkynning um slysið barst voru fyrstu viðbragðsaðilar komnir á vettvang og tóku við endurlífgun og öðrum aðgerðum á vettvangi. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út, með tvo lækna og kafara.

Fyrir voru um 50 viðbragðsaðilar, slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitarmenn og lögreglumenn, auk tveggja lækna sem komu frá Ísafirði. Björgunarsveitarmenn komu á vettvang á tveimur björgunarskipum, þeim Gísla Jóns frá Ísafirði og Kobba Láka frá Bolungarvík.

Ökumanninum var bjargað af bílflakinu um borð í annan björgunarbátinn. Hann var ekki alvarlega slasaður en orðinn kaldur. Þyrlurnar fluttu síðan ökumann og farþegana tvo til Reykjavíkur þar sem þau njóta læknismeðferðar. Líðan eins þeirra er betri en hinna. Þá hefur aðstandendum fólksins verið gert viðvart um slysið.

Fólkið sem í bílnum var er af erlendu þjóðerni, en búsett á Vestfjörðum og var á leið í sóttkví eftir að hafa komið til landsins að utan í nótt. Vegna þessa þurftu aðgerðastjórn og umdæmissóttvarnalæknir að setja alls 18 viðbragðsaðila í úrvinnslusóttkví auk þeirra fjögurra einstaklinga sem komu fyrstir á vettvang.

Vegna þessa var sóttvarnahús opnað í Önundarfirði þar sem stór hluti þessara viðbragðsaðila er í sóttkví. Vonir standa til þess að þeirri sóttkví ljúki á morgun þegar seinni sýnataka hjá einstaklingunum þremur liggur fyrir. Fyrri sýnataka hjá fólkinu á landamærunum reyndist neikvæð.

„Ástæða er til þess að hrósa vegfarendunum fjórum sem komu fyrstir á vettvang fyrir þrekvirki við björgunina en aðstæður voru afar erfiðar. Viðbragðsaðilar brugðust hratt og vel við og unnu vel á vettvangi. Veður var gott en nokkur hálka á vegi,“ segir lögregla. 

Ekki er vitað frekar um líðan fólksins. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum, en rannsóknarnefnd samgönguslysa kemur einnig að þeirri rannsókn.

Kl.10:16 í morgun barst tilkynning til Neyðarlínunnar um umferðarslys í Skötufirði. Tilkynningin barst frá tveimur...

Posted by Lögreglan á Vestfjörðum on Laugardagur, 16. janúar 2021



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert