Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2020.
Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um heimilisofbeldi. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fækkaði á milli mánaða en álíka margar tilkynningar bárust um tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi og í nóvember.
Mikil fjölgun var á skráðum kynferðisafbrotum í desember en það má einna helst rekja til aðgerða lögreglunnar í vændismálum. Undanfarnar vikur hefur LRH verið í sérstökum aðgerðum tengt mansali en vændi er ein af birtingarmyndum mansals. Þetta er einn af þeim þáttum í skipulagðri brotastarfsemi sem LRH leggur mikla áherslu á.
Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í desember og fjölgar þessum beiðnum á milli mánaða.