Skemmdir af völdum snjóflóðsins sem féll á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði voru myndaðar með dróna í dag. Sem fyrr segir var ekki unnt að senda fólk á svæðið vegna hættu á snjóflóðum.
Sigurður Þór Helgason hjá DJI Reykjavík myndaði svæðið fyrir Siglfirðinga með Matrice 300 RTK björgunardróna. Hann segir í samtali við mbl.is aðstæður hafa verið erfiðar.
Af myndunum að dæma er skíðaskálinn og geymslur gjörónýtar en skíðalyftan að mestu heil.