Tillögu Ágústs Ólafs hafnað og hann hættir í haust

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar mun ekki taka sæti á …
Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar mun ekki taka sæti á lista flokksins í komandi þingkosningum.

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar mun ekki taka sæti á lista flokksins í næstu þingkosningum sem fram fara í haust. Þetta staðfestir Ágúst Ólafur við mbl.is. Meirihluti uppstillinganefndar Samfylkingarinnar hafnaði tillögu Ágústs Ólafs sem fólst í því að hann færi úr oddvitasæti sínu í kjördæminu í nafni nýliðunar og tæki annað sætið.  

Ágúst Ólafur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. 

Samfylkingunni hefur gengið mjög vel á kjörtímabilinu, ekki síst í Reykjavík. Við höfum staðið í uppbyggingarstarfi hjá flokknum og höfum rekið málefnalega en aðhaldsríka stjórnarandstöðu á erfiðum tímum. Ég hef tekið virkan þátt í því starfi og tel mig hafa verið mikilvægan þingmann fyrir flokkinn á þessu kjörtímabili. Það er því virkilega dapurlegt fyrir mig að meirihluti uppstillingarnefndar telji ekki rétt að ég verði í líklegu þingsæti fyrir næstu kosningar,“ skrifar Ágúst Ólafur og bætir við:

Þó gagnrýna megi ýmislegt varðandi aðferðina þá virði ég um leið rétt nefndarinnar til að taka sína ákvörðun.“

Niðurstaðan vonbrigði

Ágúst Ólafur segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi í störfum sínum á Alþingi.

Samfylkingin hefur verið að mælast stærsti stjórnmálaflokkurinn í því kjördæmi sem ég leiði. Ég hef látið mig varða mikilvæg málefni ekki síst á vettvangi fjármála en einnig þegar kemur að málefnum öryrkja, aldraðra, menningar, geðheilbrigðismála og dýraverndar,“ skrifar Ágúst Ólafur. 

Hann segir að niðurstaða uppstillingarnefndar um að hafna tillögu hans sé vonbrigði.

„En ég horfi stoltur til baka yfir feril minn í stjórnmálum og er ég mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að betra samfélagi,“ skrifar Ágúst Ólafur að lokum. 

Samfylkingunni hefur gengið mjög vel á kjörtímabilinu, ekki síst í Reykjavík. Við höfum staðið í uppbyggingarstarfi hjá...

Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Miðvikudagur, 20. janúar 2021
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert