Gufa stígur upp úr sprungu nærri Þorbirni

Gufa stígur upp úr jörðinni. Nýja sprungan er á svæði …
Gufa stígur upp úr jörðinni. Nýja sprungan er á svæði sem nefnist baðsvellir og segir sagan að þarna sé gamall baðsstaður. Ljósmynd/Þórunn Alda Gylfadóttir

Sprunga hefur opnast nærri fjallinu Þorbirni í Grindavík. Svo virðist sem einhvers konar gufusmyndanir komi úr jörðinni en um er að ræða þekkt háhitasvæði. Óvissustigi var lýst nærri Þorbirni í fyrra vegna kvikusöfnunar. Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir að verið sé að kanna málið nánar. 

Þuríður Halldórsdóttir, veitti gufunni athygli og að sögn hennar hafa aðrir vegfarendur sagt að sprunga hafi myndast þar sem gufan stígur upp.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá gufuna koma upp úr jörðinni en myndbandið tók Þuríður frá Grindavíkurvegi.  

Þá má geta þess að Sýffelli sem er nærri Þorbirni og er gamalt eldfjall. Þá átti kvikuinnskot sér stað nærri Svartengi í fyrra. 

Ný sprunga hefur myndast.
Ný sprunga hefur myndast. Ljósmynd/Þórunn Alda Gylfadóttir

Gamall baðstaður 

Þá fór Þórunn Alda Gylfadóttir kennari í nátturufræði í grunnskólanum í Gríndavík á vettvang og tók myndir af nýju sprungunni. Segir hún að um sé að sé ræða gamlan baðstað. Enda er nafnið á svæðinu Baðsvellir. 

Þá tók hún jafnframt upp myndband sem sjá má hér:


Uppfært 18:23

Að sögn fróðra manna á svæðinu stafar gufan af vatni sem rennur í sprunguna frá gömlu hitaveituröri. 

Fréttin hefur verið uppfærð

Óvissustig ríkti á tímabili í fyrra vegna kvikusöfnunar við fjallið …
Óvissustig ríkti á tímabili í fyrra vegna kvikusöfnunar við fjallið Þorbjörn. Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert