Um þúsund skjálftar frá miðnætti

Kort/Veðurstofa Íslands

Jarðskjálftahrinan er enn í gangi á Reykjanesskaganum þó heldur hafi dregið úr fjölda stórra skjálfta í bili. Sjálfvirkt jarðskjálftamælikerfi Veðurstofu Íslands hefur mælt um 1.000 jarðskjálfta á svæðinu frá miðnætti og þar af hafa um 50 verið yfirfarnir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Tveir skjálftar yfir 3 að stærð mældust á Reykjanesskaganum í nótt. Sá fyrri mældist 3,1 að stærð kl. 00:53 og átti upptök um 4 km SSV af Fagradalsfjalli en sá síðari mældist 3,4 að stærð kl. 03:26 um 2,2 km N af Krýsuvík. Fundust báðir víða á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert