Alls ekki hál lending á ísnum

Vélin á suðurskautinu.
Vélin á suðurskautinu. Ljósmynd/Icelandair

August Hakansson, leiðangursstjóri og flugstjóri hjá Icelandair, segir að allt hafi gengið eins og í sögu þegar áhöfn á vegum Icelandair sótti norska vísindamenn á Suðurskautslandið og flaug þeim aftur til síns heima.

Lagt var af stað frá Íslandi á miðvikudag og lent á Troll á suðurskautinu á föstudag, þar sem vísindamönnunum var komið inn í vél áður en haldið var af stað heim til Noregs. Boeing 767-vél Icelanda­ir lenti svo í Keflavík um kaffileytið í gær eftir langt ferðalag en August segir að flugtímarnir hafi verið rúmlega 42. Millilent var í Höfðaborg í Suður-Afríku á báðum leiðum.

August kveðst eilítið lúinn eftir ferðina og segir fínt að jafna sig í sóttkví, þó að honum þyki fimm dagar fulllangur tími til þess. 

Eins og kom fram fyrir helgi er flugbrautin í Troll ólík því sem fólk á að venjast frá hefðbundnum flugvöllum en flugbrautin er gerð á ís. August segir að brautin sé á skriðjökli.

„Það er harður snjór ofan á ísnum og það var alls ekki hált,“ segir August og bendir á að jökulís verði yfirleitt ekki sleipur við vissar aðstæður, eins og voru í 13 stiga frosti í Troll fyrir helgi. Aðstæður hafi því bara verið góðar, þó að þetta sé annað en flugstjórinn eigi að venjast.

Ísilögð flugbrautin.
Ísilögð flugbrautin. Ljósmynd/Icelandair

August segir að þriðjungur norsku vísindamannanna hafi verið á suðurskautinu í 16 mánuði en hinir síðan í nóvember. Þeir sem höfðu verið lengst hafa því dvalið í hálfgerðri einangrun frá því áður en kórónuveirufaraldurinn skall á heimsbyggðinni.

„Þau hafa vitað af þessu en ekki haft reynslu af veirunni frá fyrstu hendinni, bara fylgst með fréttum,“ segir flugstjórinn en Norðmennirnir sluppu við sóttkví við komuna til síns heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert