Fundað með almannavörnum síðdegis

Fagradalsfjall á Reykjanesi í dag.
Fagradalsfjall á Reykjanesi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jarðskjálftahrina heldur áfram á Reykjanesskaga og hafa átta skjálftar yfir 3 að stærð riðið yfir frá hádegi. Þar af var einn að stærð 4,1 klukkan 12:12 og annar klukkan 14:12 að stærð 4,2.

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands funda með almannavörnum síðdegis í dag og að sögn Einars Hjörleifssonar náttúruvársérfræðings verður mat lagt á nýjustu gögn áður en ákveðið verður um framhaldið.

Hátt í 12.000 skjálftar hafa riðið yfir frá því að skjálftahrina hófst skammt frá Keili á Reykjanesi 24. febrúar síðastliðinn.

Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesskaga um 10 leytið miðvikudaginn 24. febrúar …
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesskaga um 10 leytið miðvikudaginn 24. febrúar 2021. mbl.is/kort
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert