Hreindýraveiðileyfi dregin út á laugardag

Hreindýr.
Hreindýr. mbl.is/Sigurður Bogi

Útdráttur hreindýraveiðileyfa í ár fer fram næstkomandi laugardag.

Útdrátturinn verður sendur beint út frá heimasíðu Umhverfisstofnunar og hefst klukkan 14.

Alls bárust ríflega 3.300 umsóknir um þau 1.220 veiðileyfi sem eru í boði og er það aukning frá síðasta ári, að því er kemur fram á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert