Ekkert smit greindist innanlands í gær en 11 eru í einangrun. Þrettán eru í sóttkví og 1.070 eru í skimunarsóttkví. Enginn greindist á landamærunum í gær. Nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikur er 0,5 innanlands og 2,5 á landamærunum.
Alls voru tekin 353 sýni innanlands í gær og 187 á landamærunum.