Þrír snarpir skjálftar

Fagradalsfjall á Reykjanesi.
Fagradalsfjall á Reykjanesi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um klukkan korter yfir fimm mældust þrír jarðskjálftar milli 3 og 4 með stuttu millibili á svæðinu við Fagradalsfjall.

Nokkrir eftirskjálftar hafa mælst en enginn órói hefur sést í kjölfarið.

Náttúruvársérfræðingar vinna að nánari útreikningum og staðsetningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert