Kaupmaður í hvítum slopp

Einar Jón Einarsson og Erna Sigríður Guðnadóttir hafa starfað saman …
Einar Jón Einarsson og Erna Sigríður Guðnadóttir hafa starfað saman í búðinni í áratugi. mbl.is/Sigurður Bogi

Vandi verslunarrekstrar einyrkja og þeirra sem eru með starfsemi úti á landi liggur í þeim kjörum sem heildsalarnir bjóða. Stóru verslunarkeðjurnar njóta mikils afsláttar í innkaupum, mun meiri en smærri fyrirtækjum bjóðast. Í þessu efni verður að tryggja jafnræði. Stjórnvöld verða að taka á málinu og koma með lausnir. Þetta segir Einar Jón Ólafsson, kaupmaður í Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi, gamalgróinni verslun sem á að baki 87 ára sögu.

Verðið er sanngjarnt

Erfið staða dreifbýlisverslunar hefur verið til umfjöllunar í kjölfar útgáfu nýrrar skýrslu um málið. Vandinn helgast af óhagstæðum innkaupum, samkeppni við lágvöruverðsverslanir og háum kostnaði við vöruflutninga. Í skýrslunni, sem Emil B. Karlsson, fyrrverandi forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, vann, segir að rekstur verslana þessara beri sig tæpast lengi nema opinber stuðningur komi til. Þá sé vert að Samkeppniseftirlitið kanni hvernig viðskiptakjörum sé háttað.

„Ef minni verslanir nytu sambærilegra kjara og stóru fyrirtækin værum við á grænni grein,“ segir Einar Jón. „Og í raun erum við í þessari búð í ágætum málum. Viðskiptavinir eru okkur tryggir því hér er fjölbreytt úrval af góðum vörum, afgreiðslutíminn langur og verð sanngjarnt. Við höldum álagningu niðri og slíkt er mögulegt því þetta er skuldlaust fjölskyldufyrirtæki og hóf á öllu. Hér vinna um tíu manns en við hjónin og synir okkar mikið við þetta sjálf og þannig gengur dæmið upp.“

Einar Jón við búðarkassann.
Einar Jón við búðarkassann. mbl.is//Sigurður Bogi

Verslunin hefur sál

Verslunin góða er í daglegu máli Akurnesinga kölluð Einarsbúð og er á Skagabraut 9-11. Fyrirtækið var stofnað árið 1934 af Einari Ólafssyni, sem lést árið 1957. Varð þá úr að sonurinn Einar Jón, sem skírður er Ólafsson, tók við rekstrinum aðeins átján ára gamall og er enn að – með Ernu Sigríði Guðnadóttur konu sinni. Synir þeirra, þeir Einar og Guðni, koma einnig að rekstrinum og sinna ýmsum þáttum í daglegum rekstri. Einarsbúð er opin alla virka daga frá hálfátta til sex og hálftímanum lengur á föstudögum. Lokað er um helgar.

„Ég sé enga ástæðu til að hætta störfum þótt ég sé orðinn 83 ára. Heilsan er góð og starfið skemmtilegt,“ segir Einar sem stendur í búðinni í hvítum slopp, eins og matvörukaupmenn fyrri tíðar gerðu gjarnan. Verslunin hefur líka svo sannarlega sál; margt þar innandyra minnir á gamla tíma. Og þarna fæst flest sem þarf; nýmeti í kjötborði, mjólk í kæli og rúgbrauð frá Brauða- og kökugerðinni við Innnesveg.

„Þegar ég byrjaði hér voru þrettán nýlenduvöruverslanir á Akranesi, sem týndu tölunni með tímanum. Umhverfið breyttist og nú eru hér Krónan og Bónus. Auðvitað erum við í samkeppni við þær verslanir, en verðmunurinn milli okkar og þeirra er ekki svo mikill. Hér er nóg að gera, hingað kemur bæði fólk af götunni til innkaupa og einnig seljum við mikið í fyrirtæki hér í bænum, sem mörg eru komin með mötuneyti fyrir starfsfólkið.“

Einarsbúð á Akranesi.
Einarsbúð á Akranesi. mbl.is/Sigurður Bogi

Náð í nýtt til Reykjavíkur

Úr Einarsbúð er farið á hverjum morgni til Reykjavíkur og náð í kjöt og fisk og fleira sem þarf og viðskiptavinir vilja, segir Einar sem aftur leggur áherslu á að jafna verði stöðuna í viðskiptum við heildsalana. Ætla verði að stóru verslunarkeðjurnar fái 30-40% afslátt af skráðu verði hjá stóru birgjunum, sem aftur gefa minni fyrirtækjum á markaði 5-15% afslátt.

„Af því má ráða hve mikil álagning og framlegðin er hjá lágvöruverðsverslununum sem geta neytt aflsmunar til að fá þessi hagstæðu kjör. Svo virðist líka sem Samkeppniseftirlitið haldi verndarhendi yfir starfsemi verslanakeðjanna. Að minnsta kosti hefur ekki þótt ástæða til að bregðast við ábendingum okkar um þann mikla mun sem er á afsláttarkjörum. Í því misrétti liggur vandi verslunar á landsbyggðinni,“ segir Einar Jón Ólafsson kaupmaður að síðustu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert