Minnir okkur á að slaka ekki á sóttvörnum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Smitfréttir dagsins minna okkur öll á að slaka ekki á sóttvörnum. Nú er fjöldi fólks kominn í sóttkví og enn fleiri boðaðir í sýnatöku. Það verður fylgst vel með þróun mála næstu daga og allt er gert til að ná utan um þetta smit.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra eftir fréttir dagsins þess efnis að tveir hefðu greinst með svokallað breskt afbrigði Covid-19.

Tugir eru komnir í sóttkví vegna smitanna og sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fyrr í dag að það ráðist eft­ir morg­undag­inn hvort inn­an­lands­smit­in í gær hrindi af stað fjórðu bylgju far­ald­urs­ins hér á landi.

Svo er bara að gera það sem við höfum sýnt að skilar árangri; fylgjum reglunum um fjöldatakmarkanir og fjarlægðir og grímunotkun, þvoum okkur um hendur og sprittum okkur – fyrir okkur öll,“ skrifar Katrín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert