Ekkert ríki grænt í Evrópu

Fjöldi Covid-19-smita í ríkjum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins í 12. …
Fjöldi Covid-19-smita í ríkjum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins í 12. og 13. viku. Kort/Sóttvarnastofnun Evrópu

Ekkert ríki í Evrópu er grænt samkvæmt korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Ísland var lengi vel eina landið sem hafði þann lit en það breyttist í kjölfar fjórðu bylgjunnar hér á landi. Hluti Noregs er grænn en ekki allt landið. Ekkert frekar en Danmörk sem bæði Færeyjar og Grænland teljast til. Kort Sóttvarnastofnunar nær til þeirra ríkja sem eru innan Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins. 

Ísland er gult á korti Sótt­varna­stofn­un­ar Evr­ópu með skráð 29,11 smit á hverja 100 þúsund íbúa á tveggja vikna tíma­bili. Ísland er eina landið í Evr­ópu með und­ir 100 smit á hverja 100 þúsund íbúa fyrir utan Portúgal en þar eru skráð 55,92 smit á hverja 100 þúsund íbúa. Töl­urn­ar voru síðast uppfærðar 8. apríl.

Í Svíþjóð er staðan verst af Norður­lönd­un­um en þar eru smit­in 739,16 tals­ins á hverja 100 þúsund íbúa. Í Nor­egi eru þau 218,63, 129,15 í Dan­mörku og 138,71 í Finn­landi.

Flest eru smit­in í Ung­verjalandi eða 1.117,8. Í Eistlandi eru þau 1.007,32 talsins á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær viku

Staðan í nokkr­um ríkj­um Evr­ópu:

  • Frakk­land 801,94
  • Ítal­ía 489,40
  • Spánn 174,34
  • Þýska­land 272,53
  • Pól­land 988,81
  • Hol­land 571,72
  • Belg­ía 550,62
  • Lettland 351,00
  • Litháen 389,11

Sjá nánar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert