Á annað hundrað kíló af kannabisefnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarið stöðvað kannabisræktanir á fjórum stöðum í umdæminu og lagt hald á mikið magn kannabisefna, eða vel á annað hundrað kíló, en það er mat lögreglu að í öllum tilvikunum hafi efnin verið ætluð til sölu og dreifingar.

Um var að ræða umfangsmiklar ræktanir í bæði iðnaðar- og íbúðarhúsnæði, m.a. í sérútbúnu rými, og var búnaðurinn eftir því. Nokkrir hafa verið handteknir í þessum aðgerðum lögreglunnar og einn úrskurðaður í gæsluvarðhald, en rannsókn málanna miðar vel. Á einum staðnum var enn fremur lagt hald á tæplega eitt kíló af ætluðu amfetamíni, að því er lögreglan greinir frá. 

„Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert