Oddný leiðir lista Samfylkingar

Frambjóðendur Samfylkingar í efstu fimm sætum listans.
Frambjóðendur Samfylkingar í efstu fimm sætum listans. Ljósmynd/Aðsend

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, þingflokksformaður og fyrrverandi fjármálaráðherra, leiðir listann.

Í öðru sæti er Viktor Stefán Pálsson, sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss.

Þriðja sætið skipar Guðný Birna Guðmundsdóttir, hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA-nemi.

Í fjórða sæti er Inger Erla Thomsen, stjórnmálafræðinemi úr Grímsnesi, og fimmta sætið skipar formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ Friðjón Einarsson.

Eysteinn Eyjólfsson, formaður Öldungaráðs Suðurnesja og fyrrverandi útsölustjóri ÁTVR, skipar heiðurssæti listans.

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar.
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Leiðir listann með stolti

Í tilkynningu frá stjórnmálaflokknum er listinn sagður „skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem á það sameiginlegt að vilja vinna að samfélagi sem hugar vel að öllum sínum íbúum með öruggum grunnstoðum og öflugu atvinnulífi“.

Haft er eftir Oddnýju að hún leiði listann með stolti inn í kosningar og hópurinn sé öflugur.

„Það eru fjölmörg tækifæri fram undan í uppbyggingu eftir heimsfaraldur og sýn okkar er skýr í þeim efnum. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa brugðist og ekki staðið með fólkinu í kjördæminu sem bera þyngstu byrðarnar í heimsfaraldrinum. Nú þurfum við allar hendur á dekk svo ný ríkisstjórn eftir kosningar verði leidd af jafnaðarmönnum.”

Framboðslistinn er eftirfarandi:

  1. Oddný G. Harðardóttir, Suðurnesjabær - Þingmaður Samfylkingarinnar, þingflokksformaður, kennari, fyrrverandi bæjarstjóri í Garði og fyrrverandi fjármálaráðherra.
  2. Viktor Stefán Pálsson, Árborg - Sviðsstjóri hjá Matvælastofnun og formaður Ungmennafélags Selfoss
  3. Guðný Birna Guðmundsdóttir, Reykjanesbær - Hjúkrunarstjóri heimahjúkrunar hjá Reykjavíkurborg, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hjúkrunarfræðingur og MBA-nemi
  4. Inger Erla Thomsen, Grímsnes - Stjórnmálafræðinemi
  5. Friðjón Einarsson, Reykjanesbær - Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar
  6. Anton Örn Eggertsson, Vestmannaeyjar - Meðeigandi í Pítsugerðinni og yfirkokkur hjá veitingastaðnum Gott
  7. Margrét Sturlaugsdóttir, Reykjanesbær - Atvinnulaus fyrrverandi flugfreyja Icelandair
  8. Davíð Kristjánsson, Árborg - Vélvirki hjá Veitum
  9. Siggeir Fannar Ævarsson, Grindavik - Framkvæmdastjóri
  10. Elín Björg Jónsdóttir, Þorlákshöfn - Fyrrverandi formaður BSRB
  11. Óðinn Hilmisson, Vogar - Húsasmíðameistari, kennaranám iðnmeistara, tónlistarmaður og rithöfundur
  12. Guðrún Ingimundardóttir, Höfn í Hornafirði - Vinnur við umönnun og er eftirlaunaþegi
  13. Hrafn Óskar Oddsson, Vestmannaeyjar - Sjómaður
  14. Hildur Tryggvadóttir, Hvolsvelli - Sjúkraliði og nemi í leikskólafræði við Háskóla Ísland
  15. Fríða Stefánsdóttir, Suðurnesjabær - Formaður bæjarráðs í Suðurnesjabæ og deildarstjóri í Sandgerðisskóla
  16. Hafþór Ingi Ragnarsson, Hrunamannahreppi - 6. árs læknanemi og aðstoðarlæknir á bráðamóttöku HSu
  17. Sigurrós Antonsdóttir, Reykjanesbær - Hársnyrtimeistari, atvinnurekandi og kennari
  18. Gunnar Karl Ólafsson, Árborg - Sérfræðingur á kjarasviði hjá Bárunni, stéttarfélagi
  19. Soffía Sigurðardóttir, Árborg - Markþjálfi
  20. Eyjólfur Eysteinsson, Reykjanesbær - Formaður Öldungaráðs Suðurnesja og fyrrv. útsölustjóri ÁTVR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert