Kom að þjófi í bifreið sinni

Tilkynnt var um innbrot í bifreið í miðbæ Reykjavíkur á áttunda tímanum í morgun. Eigandi bifreiðarinnar hafði þar komið að öðrum inni í bifreiðinni og hljóp sá síðarnefndi á brott. Var hann handtekinn síðar og færður í fangaklefa. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Þá var einnig tilkynnt í morgun um mannlausa bifreið í miðbænum. Bifreiðin var skemmd og tvær aðrar nálægar bifreiðar voru með sjáanlegt tjón. Lögreglan hafði uppi á eiganda bifreiðarinnar og játaði hann að hafa ekið bifreiðinni og að hafa verið undir áhrifum áfengis.

Í Kópavogi var í morgun tilkynnt um eignaspjöll, en spreyjað hafði verið á íbúðarhúsnæði, húsbíl og bifreiðar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert