Vilja að HÍ hætti að hagnast á spilakössum

Stúdentaráð hefur samþykkt að beita sér gegn því að HÍ …
Stúdentaráð hefur samþykkt að beita sér gegn því að HÍ hagnist af rekstri spilakassa. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Stúdentaráð hefur samþykkt að ályktað verði um aðkomu Háskóla Íslands að rekstri spilakassa í gegnum Happdrætti Háskóla Íslands. Þess er krafist að Háskóli Íslands taki ekki þátt í rekstri spilakassa og fjármagni ekki starfsemi sína með þeim hætti.

Kemur þetta fram á Facebook-síðu stúdentafylkingarinnar Vöku en fulltrúar hennar fluttu tillöguna. Þar segir orðrétt:

„Mótrök HHÍ og stjórnenda háskólans við lokun spilakassa er[u] að mestu leyti [þau] að það var ákvörðun Alþingis að fjármagna skuli byggingar háskólans, viðhald og tækjakaup með happdrættisfé og sök þar með kastað á stjórnvöld.

Fyrsta skrefið í lokun spilakassa væri að sýna að það er vilji meðal stúdenta til að finna aðra leið til að fjármagna byggingar háskólans sem ýtir ekki [u]ndir fíkn og í kjölfarið yrði tekin lengra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert